Other courses available > Vinnuskóli Hafnarfjarðar



Vinnuskóli Hafnarfjarðar
v/Hrauntungu
220 Hafnarfirði
565-1899
vinnuskoli@hafnarfjordur.is
http://ith.is/




Vinnuskóli Hafnarfjarðar

Sumar 2010

Á sumrin eru starfandi fjölmargir hópar í  Vinnuskóla Hafnarfjarðar.

Almennir vinnuhópar
Stærsti hluti Vinnuskólans eru almennir vinnuhópar þar sem unglingar vinna ýmis hreinsunar og fegrunarstörf í bænum.

Jafningjafræðslan
Í jafningjafræðslunni starfa nokkur ungmenni (17 ára og eldri) undir handleiðslu flokkstjóra. Hópurinn tekur á móti hópum vinnuskólans og fræðir þá um ýmis málefni tengd fordómum, einelti og ýmsa áhættuhegðun.

Listahópar
Listahóparnir eru tveir og er annar þeirra saman settur af unglingum úr 9. og 10. bekk. Eldri listahópurinn er ungmennum á aldrinum 17-20 ára. Flokkstjórar þjálfa hópana sem vinna fjölbreytt listastörf um sumarið. Störf sem listahópar hafa unnið undanfarin ár er m.a. að skemmta á leikjanámskeiðum og leikskólum. Skemmt á sumarhátíð ÍTH og 17. júní, tekið á móti skemmtiferðaskipum, verið með spuna og skemmtanir í miðbænum o.m.fl.

Tónlistarhópur
Undanfarin sumur hefur verið starfandi tónlistarhópur Vinnuskólans. Tónlistarhópurinn hefur unnið að ýmsum skemmtilegum uppákomum s.s.að skemmta í miðbænum, spila fyrir leikjanámskeið og leikskóla, á ýmsum hátíðum o.s.frv.

Menningar- og ferðamálahópur
Sumarið 2009 var í fyrsta sinn starfræktur menningar- og ferðamálahópur Vinnuskólans. Verkefni hópsins er að auglýsa og kynna ferðamönnum fyrir því sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða.

Fjölmiðlahópur
Fjölmiðlahópurinn er skipaður unglingum sem hafa það starf að sinna verkefnum blaðamanna um sumarið. Unglingarnir fá þjálfun í blaða- og fréttamennsku og vinna bæði verkefni ljósvaka- og prentmiðla.

Graffitihópur
Í graffitihópnum vinna ungmenni verkefni tengd graffiti eða veggjalist. Hópurinn hefur graffað í undirgöng þar sem leyfi hefur fengist til að gera slíkt og einnig graffað listaverk á striga og plötur og haldið sýningu.


Upplýsingar
Í sumar, 2010, verða unglingar fæddir 1996, 1995 og 1994 í Vinnuskólanum (14, 15, og 16 ára). Vinnuskólinn hefur starfsemi sína 14. júní og líkur þann 23. júlí.
Skrifstofa Vinnuskólans er opin frá kl. 9-16 en frá 14. júní til loka júlí er opið frá kl. 8.00-16.30. Sími Vinnuskólans er 565-1899. Netfang er ragna@hafnarfjordur.is og veffangið er http://www.ith.is/.

Vinnutímabil
14, 15 og 16 ára unglingar (fæddir 1994-1996) hefja vinnu 14. júní og vinna til 23. júlí, eða 6 vikur alls.

Daglegur vinnutími
15 og 16 ára unglingar vinna frá 9.00 - 11.45 og 13.00 - 15.45. Vinnustundir á viku eru 22.
14 ára unglingar vinna aðra hverja viku fyrir hádegi og eftir hádegi hina, mánudag til fimmtudags. Fyrir hádegi er unnið frá 9.00 - 12.00 og eftir hádegi frá 13.00 - 16.00. Vinnustundir á viku eru 12.

Laun
16 ára unglingar eru með 488,01 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Þegar allt er talið geta unglingar á þessum aldri unnið sér inn um 70.000 kr. yfir sumarið miðað við fulla mætingu. Mjög brýnt er að 16 ára unglingar skili inn skattkorti svo ekki verði tekinn af þeim skattur. Flokksstjórar munu minna unglingana á skattkortin fljótlega eftir að vinna hefst.
15 ára unglingar verða með 367,07 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Miðað við fulla mætingu geta þau unnið sér inn um 53.000 kr.
14 ára unglingar verða með 325,69 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Miðað við fulla mætingu verða heildarlaun hjá þeim um 25.000 kr. Orlof (10,17%) er borgað út hjá öllum aldurshópum.

Laun verða greidd 6. júlí fyrir júní og 6. ágúst fyrir júlí.



Umsóknir
ÍTH og Garðyrkjustjórinn í Hafnarfirði óska eftir að ráða starfsfólk til sumarstarfa.

Eftirfarandi störf eru í boði:
Flokksstjórar í Vinnuskóla
Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeið
Leiðbeinendur í skólagörðum
Leiðbeinendur á gæsluvöllum

Lágmarksaldur umsækjenda um þessi störf er 21 ár (fæddir 1989)

Í fegrunarflokki (blómaflokki)
Í sláttuflokki
Í viðhaldsflokki
Aðstoðarleiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeiðum
Aðstoðarleiðbeinendur í skólagörðum
Aðstoðarleiðbeinendur á gæsluvöllum

Aldur umsækjenda um þessi störf er 17 – 20 ára (fæddir 1990 – 1993).

Tekið verður á móti umsóknum á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar 15. – 31. mars frá kl. 12.00 – 16.00, í húsi Framkvæmdasviðs Hafnarfjarðar, Norðuhellu 2 frá kl. kl. 7.30 og 16.30 alla virka daga nema föstudaga til kl. 15.00, í Þjónustuverinu að Strandgötu 6, á skrifstofu ÍTH og skrifstofu forvarnafulltrúa í Gamla bókasafninu.

Umsóknareyðublöð má nálgast á öllum ofangreindum stöðum og á hafnarfjordur.is.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 565-1899. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið ragna@hafnarfjordur.is. og í síma 585-5670 og  boddi@hafnarfjordur.is.

Umsækjendur eru hvattir til að sækja um rafrænt á hafnarfjordur.is



Fara til baka