Other courses available > Íþróttamiðstöðin Björk




Íþróttamiðstöðin Björk
Haukahrauni 1
220 Hafnarfirði
565-2311
fbjork@fbjork.is
http://www.fbjork.is/





Íþróttanámskeið Bjarkanna

Sumar 2010

Í ár býður Fimleikafélagið Björk upp á fjölbreytt námskeið í sumar fyrir börn fædd 1997-2004. Á námskeiðinu er kennum við grunn í öllum þeim íþróttagreinum sem Bjarkirnar bjóða upp á þ.e. fimleikum, klifri, parkour (götufimleikar) fitkid og taekwondo. Boðið verður upp á fjölbreytta leiki bæði úti og inni, púðagryfju, loftdýnu, trampólín, línuskauta, hjólabretti og götufimleika, leiklist svo eitthvað sé nefnt. Auk þess verður farið í stuttar ferðir innan Hafnarfjarðar og nágrennis. Hægt er að velja um að vera í ákveðinni íþróttagrein eða blönduðu námskeiði.

Í fimleikum bjóðum við nemendum okkar úr grunnhópum að bæta við færni sína í þreki, liðleika og tækniæfingum. Fimleikanámskeiðin eru frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00.

Í klifri kennum við grunntækni í klifri og tryggingu. Einnig læra iðkendur hnúta, línu og leiðsluklifur. Námskeiðið er frá 9:00-12:00. 

Útivistarnámskeið er fyrir krakka 10 – 13 ára. Námskeiðið er allan daginn frá 9:00-16:00. Farið verður í gönguferðir, hellaleiðangur, klifur úti og inn, fjallgöngur og óvissuferð.


Í Parkour
er stefnt að því að vera mikið úti en allur grunnur og tækni er kennt inni í sal. Hver tími er 1.5 kls. og eru þau aldurs skipt.

Fitkid er sambland af fimleikum og dansi. Þar læra nemendur grunnæfingar í fimleikum og dansi og  setja saman dansa.

Námskeiðin eru eftirfarandi:
Hálfsdagsnámskeiðin eru frá 9:00-12:00 og 13:00-16:00.
Heilsdagsnámskeiðin eru fra 9:00 -16:00

Hægt er að kaupa mat í hádeginu.
Einnig bjóðum við uppá gæslu milli 8:00- 9:00 og 16:00-17:00.

Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 565 2311 frá kl. 9:00 – 16:00, einnig með tölvupósti á fbjork@fbjork.is eða á heimasíðu félagsins http://fbjork.is/
Ganga þarf frá greiðslum áður en hvert námskeiði hefst.
Þann 7. júní er opið hjá okkur frá kl. 9:00- 18:00 en þá er tekið á móti greiðslum og kort afhent.





Fara til baka