Other courses available > Félagsmiðstöðin Hraunið




Félagsmiðstöðin Hraunið
Víðistaðaskóla
220 Hafnarfirði
595 5819
hraunid@hafnarfjordur.is
http://hraunid.is/



SumarHraunið

Sumar 2010

Félagsmiðstöðin Hraunið er staðsett í Víðistaðaskóla og þjónustar börn og unglinga í norður – og vesturbæ. Hraunið heldur úti skipulögðu tómstunda¬¬starfi fyrir börn í 5. – 10. bekk í hverfinu allan ársins hring. Í sumar verður  Hraunið með skipulagt starf fyrir börn og unglinga frá 6 – 16 ára sem ber yfirskriftina Sumarhraunið 2010.

Fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára fædd 2001 – 2004 verður boðið upp á leikjanámskeið. Fyrir börn á aldrinum 10 – 13 ára fædd 1997 – 2000 verður boðið upp á  fjölbreytt sumarnámskeið.
Námskeiðin verða aldursskipt annarsvegar 4 . – 5. bekkur saman og hins vegar 6. – 7. bekkur saman. Hraunið verður opið fyrir 7. – 10.bekk með svipuðum hætti og síðastliðið sumar. Markmiðið með starfsemi Sumarhraunsins  er að veita börnum og unglingum í hverfinu tækifæri til að vera saman og stunda skemmtilegar tómstundir undir leiðsögn reyndra tómstundaleiðbeinenda ÍTH. Áhersla verður lögð á að efla félagsfærni og sjálfstraust barnanna og veita leiðsögn og fræðslu í gegnum leik og skemmtun. Tekið er mið af þroska og þörfum barna á þessum aldri í skipulagningu starfsins. Starfið verður mótað eftir hugmyndum krakkana.
Starfið  verður staðsett í Víðistaðaskóla og í nágrenni við Víðistaðaskóla. Yfirumsjón með sumarstarfinu hefur Jóhanna M. Fleckenstein forstöðumaður Hraunsins.

Leikjanámskeið Hraunsins
Leikjanámskeiðið verður með svipuðu móti og undanfarin ár nema hvað varðar aldur þátttakenda. Í ár verður leikjanámskeiðið ætlað börnum fæddum 2001 – 2004, börn sem eru að byrja í 1. bekk haustið 2010 og 1. – 3. bekkur þetta skólaár. Yfirumsjón með leikjanámskeiðinu hafa Steinunn Kristín Friðriksdóttir og Ebenezer Þ. Einarsson. 

Skráning á leikjanámskeiðið fer fram á íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar.

Leikjanámskeiðið verður auglýst nánar síðar áður en skóla lýkur.

Fjörið  4. – 7.bekkur
Félagsmiðstöðin Hraunið stendur fyrir fjölmörgum sumarnámskeiðum ætluðum 10-13 ára krökkum (fædd 1997-2000). Námskeiðin bera eitt nafn, Fjörið og er markmið þess að krakkarnir á þessum aldri geti tekið þátt í skemmtilegum og lærdómsríkum sumarnámskeiðum í júní og júlí. Námskeiðin verða aldursskipt , 4.-5. bekkur saman og 6.-7. bekkur saman. Skráning fer fram á íbúagáttinni og kostar 3500 kr fyrir sumarið. Föstudaginn 11. júní verður opnunarhátíð og þá geta börnin valið sér námskeiðin fyrir sumarið. Mánudaginn 14. júní hefjast fyrstu námskeiðin. Hvert námskeið er hálfan daginn í fjóra daga . Alla föstudaga verður föstudagsfjör þar sem margt skemmtilegt verður gert. Starfinu lýkur föstudaginn 23. júlí með lokahátíð. Starfsmenn Hraunsins koma fyrir skólalok og kynna starfið. Yfirumsjón með Fjörinu í Hrauninu hafa John F. Bond og Arna Guðlaugsdóttir.

Hraunið  7. – 10.bekkur
Starfið mun byggjast upp á hefðbundnu félagsmiðstöðvarstarfi , klúbbum og atburðum. Í félagsmiðstöðinni er t.d. billiardborð, föndurdót, borðtennisspil, fótboltaspil, spil og fleira.
Opið verður þriðjudags – og fimmtudagskvöld frá og með 1. júní. Endanlegur opnunartími verður auglýstur fyrir skólalok.

Nánari upplýsingar verður hægt að fá á vefsíðu Hraunsins  http://www.hraunid.is/  og síma 595 5819.


Ath. Eingöngu er hægt að skrá í gegnum Íbúagáttina og greiða með greiðslukorti við skráningu.



Fara til baka