Golfleikjaskólinn er tilvalinn til að taka sín fyrstu skref í golfíþróttinni.
Boðið verður upp á fjölskyldunámskeið þar sem foreldrar, ömmur og afar geta lært golf saman með börnum sínum eða barnabörnum og byggt upp sameiginlegt áhugamál.
Námskeiðin eru 5 virkir dagar í röð 1 ½ tími í senn. Hægt er að velja um tímana 17.30-19.00 eða 19.10-20.40
Áhöld eru á staðnum fyrir þá sem ekki eiga.
Námskeiðsgjald er 7000.- + vallargjald þegar farið er á golfvöll síðasta daginn ca. 1000.-
Sumarið hefst með upprifjunarnámskeiði mánudaginn 26. apríl n.k. fyrir þá sem aðeins hafa prófað golf og síðan hefjast ný byrjendanámskeið flesta mánudaga í sumar.
Golfleiðbeinandi er Anna Día Íþróttafræðingur og Golfleikjaskólinn ehf.,
Strandvegur 1,201, 210 Garðabæ
Sími: 691-5508
Skráning er hafin á golf@golfleikjaskolinn.is
