Other courses available > Golfskóli Keilis




Golfskóli Keilis
Golfvelli Keilis á Hvaleyri
220 Hafnarfirði
565-3360
http://keilir.is/




Golfskóli Keilis

Sumar 2010

Golfskóli
fyrir börn og unglinga fædd 1997 - 2002  verður  hjá  Golfklúbbnum  Keili  í sumar. Farið verður yfir helstu grunnatriði og börnunum kennt að umgangast golfvöllinn. Kennsla fer fram á 9 holu Golfvelli Keilis á Hvaleyri og í Hraunkoti æfingasvæði Keilis.

Haldin verða fimm námskeið og fer kennsla fram á eftir töldum dögum:

Námskeið 1:
8. - 18. júní, frá kl. 9:00 - 11:45
Námskeið 2:
8. - 18. júní, frá kl. 12:30 – 15:15.
Námskeið 3:
21. júní – 1. júlí, frá kl.  9:00 - 11:45
Námskeið 4:
21.júní. - 1. júlíNá, frá kl. 12:30 – 15:15.
Námskeið 5:
03.ágúst - 12 ágúst,  frá kl. 09:00 – 12:00.

Hámarksfjöldi í hverjum hóp er tuttugu.
Í lok hvers námskeiðs verður verðlaunahátíð þar sem allir fá viðurkenningarskjal og boðið verður upp á  grillveislu.

Umsjónarmaður og leiðbeinandi verður Jóhann K Hjaltason PGA – golfkennari , honum til aðstoðar verða ungir kylfingar úr afrekshópum Keilis.

Innritun fer fram í síma 565-3360 og hefst þriðjudaginn 25.maí nk. Kúlur og kylfur eru á staðnum en þeir sem eiga kylfur mega gjarnan koma með þær. Unglingar sem hafa sótt golfskóla Keilis hafa forgang um að gerast félagar í Golfklúbbinn Keili.
Námskeiðsgjald  er kr. 13.000, greiðist við innritun.

Foreldrar athugið að börnin séu klædd eftir veðri og að þau taki með nesti.







Fara til baka