Other courses available > Siglingaklúbburinn Þytur




Siglingaklúbburinn Þytur
Strandgötu 2
220 Hafnarfirði
555-3422
sailing@sailing.is
http://sailing.is/




Siglinganámskeið

Sumar 2010

Sumarnámskeið barna hjá Siglingaklúbbnum Þyt

Í Sumar mun Siglingaklúbburinn Þytur bjóða upp á siglinganámskeið fyrir börn og unglinga 10 ára og eldri, fædd 2000 og eldri. Kennt er eftir nýrri námsskrá sem Siglingasamband Íslands hefur látið þýða og staðfæra.
Þátttakendum er kennt að bregðast við síbreytilegum aðstæðum, siglingar á kayak og seglbátum, siglingareglur og umgengni um báta og búnað þeirra. Í lok námskeiðs gerum við okkur dagamun, hópum i sjóinn, buslum og endum á grillveislu.

Hvert námskeið er í tvær vikur hálfan daginn frá kl. 9.00 – 12.00 eða frá kl. 13.00 – 16.00. Kennt er í aðstöðu Þyts, Strandgötu 88 og við Hafnarfjarðarhöfn.

Hvert námskeið kostar 12.500 kr. og er 20% systkinaafsláttur, einnig er 20% afsláttur fyrir framhaldsnámskeið.

Námskeiðin verða haldin eftirfarandi daga:
7. júní – 18.júní    ATH 17. júní er frí dagur
21. júní – 2.júlí
5. júlí – 16. júlí
19. júlí – 30. júlí

Nánari upplýsingar og innritun í síma 555 3422 alla virka daga frá klukkan 8.30 – 16.30 frá 17. maí.
Einnig eru skráningar og upplýsingar á heimasíðu félagsins, http://www.sailing.is/








Fara til baka