Sumarsund fyrir hressa krakka, (fædd 2000-2005) Sumarsundskóli Sundfélags Hafnarfjarðar, SH, verður starfræktur í Ásvallalaug í sumar.
Kennarar eru reyndir íþrótta- og sundkennarar ásamt okkar besta sundfólki.
Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 5-10 ára (fædd 2000-2005 ) og standa námskeiðin yfir í tvær vikur. Hvert skipti er 40 mín. og er val um 6 hópa á dag. Fyrsta námskeiðslotan er frátekin fyrir leikskóla í Hafnarfirði.
Tímabil sem verða í boði eru: 14. júní - 25.júní 28. júní - 8. júlí 12. júlí - 23. júlí
Allar upplýsingar um sumarsund Sundfélags Hafnarfjarðar og innritun verða á heimasíðu SH http://www.sh.is/ eftir 1. maí 2010.
Á þessum sumarvef íth er hægt að finna upplýsingar um það sem í boði er fyrir börn og ungmenni í sumar, allt frá 3 mánaða upp í 18 ára. Úr mörgu er að veljaog má nefna félagsmiðstöð, leikjanámskeið, sumarbúðir, siglingar, leiklist, ýmis íþróttanámskeið og margt fleira. Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi.
Hægt er að finna námskeið með því að leita í leitarvélinni hér fyrir neðan eða leita í listanum hér til hliðar sem er flokkaður í nokkra efnisflokka. Einnig eru upplýsingar um nokkur falleg útivistarsvæði, leiksvæði, sundlaugar og hátíðir á vegum íth.