Other courses available > Leiklist - Ronja ræningjadóttir í Hellisgerði




Leiklist - Ronja ræningjadóttir í Hellisgerði
Hellisgerði
220 Hafnarfirði
690-9171
leiklist.hellisgerdi@gmail.com




Leiklist - Ronja ræningjadóttir í Hellisgerði

Sumar 2010

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á leiklistarnámskeið í Hellisgerði. Hvert námskeið stendur í tvær vikur. Farið er í grunnatriði leiklistar en tekið verður fyrir hið stórskemmtilega leikrit RONJA RÆNINGJADÓTTIR. Nemendur munu æfa atriði úr þessu stórskemmtilega leikriti og sýna undir berum himni Hellisgerðis fyrir gesti og gangandi í lok námskeiðsins. Námskeiðin eru fyrir hádegi frá kl.  9 - 12. Þessi námskeið eru ætluð krökkum frá 9 til 11 ára. Kennarar eru menntaðir leikarar og leikstjórar og hafa áralanga reynslu af leiklistarkennslu.

Einungis tvö námskeið í boði:
1. námskeið: 7. júní - 18. júní
2. námskeið: 21. júni - 2. júlí


Allar nánari upplýsingar gefur Jón Ingi Hákonarson, leikari í síma 690 9171. Skráning fer fram á leiklist.hellisgerdi@gmail.com




Fara til baka