Other courses available > Félagsmiðstöðin Músík og Mótor




Félagsmiðstöðin Músík og Mótor
Drangahrauni
220 Hafnarfirði
534-7260
mogm@ith.is
http://tomstund.is/mogm




Félagsmiðstöðin Músík og Mótor í Drift

Sumar 2010

Félagsmiðstöðin Músík og Mótor í Drift
Félagsmiðstöðin hefur aðsetur að Dalshrauni 10 þar sem áður var lakkrísgerðin Drift og deilir því húsnæði með Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar. Í félagsmiðstöðinni er lögð áhersla á mótorsport, aðstöðu til æfinga fyrir unglingahjómsveitir og upptökustúdíó.

Í músíkhlutanum er um afar góða aðstöðu að ræða fyrir um 10 hljómsveitir, þar sem hver hljómsveit fær ágæt sérherbergi til æfinga. Einnig er mjög fullkomin upptökuaðstaða sem hljómsveitir geta nýtt sér undir leiðsögn fagmanna.

Undanfarin ár hefur unglingahljómsveitunum gefist tækifæri á að koma fram víðsvegar og taka þátt í tónleikum. Á heimasíðu www.tomstund.is/mogm er umsóknareyðublað og eru hljómsveitir hvattar til að sækja um aðstöðuna. Hljómsveitir sem æfa fá alls konar stuðning til að þróa áfram tónlist sína.

Hafnarfjarðarbær býður upp á aðstöðuna hljómsveitunum að kostnaðarlausu.

Í mótorhlutanum er um nokkuð sérhæfða félagsmiðstöð að ræða þar sem dagleg viðfangsefni snúast um mótor og mótorsport. Einnig er svigrúm til að hlúa að öðrum jaðargreinum og eru starfsmenn viljugir til að leggja ungu fólki lið við ýmis verkefni. Áhugamönnum um mótorsport býðst þarna ágæt aðstaða til viðhalds og þeir fá stuðning hjá starfsmönnum við flókin úrlausnarefni. Það eru næg verkefni á staðnum og á félagsmiðstöðin sjálf hjól þannig að gestir þurfa ekki endilega að eiga mótorhjól til að geta nýtt sér aðstöðuna. Það er opið yfir sumartímann.

Opnunartíminn í sumar:
Mánudaga 17–22
Miðvikudaga 17–22
Föstudaga 16:30–22:30 (annan hvern)
Laugardaga 10–14

Nánari upplýsingar á heimasíðu. www.tomstund.is/mogm og hjá Steini Hlíðari Jónssyni umsjónarmanni í síma 534 7260 og 664 5764, netfang mogm@ith.is






Fara til baka