Other courses available > Gamla bókasafnið
![]() |
Gamla bókasafnið |
Gamla bókasafnið
Sumar 2010 Unga fólkið hefur sannarlega kunnað að meta staðinn og verkefnum ungs fólks í húsinu fer fjölgandi. Yfir sumartímann eru haldnir tónleikar og verða þeir auglýstir sérstaklega, en áhugasömum hljómsveitum er bent á að hafa samband við okkur. Á sumrin breytist starfsemin og mun fjölbreytt hópastarf, s.s. fjölmiðlahópur og jafningjafræðsla á vegum Vinnuskólans, leggja húsið undir sig megnið af sumrinu. Á Björtum dögum verður sérstök menningartengd dagskrá í húsinu sem Húsráð Gamla bókasafnsins skipuleggur. Ýmiss konar önnur starfsemi fer fram í Gamla bókasafninu sem einnig er miðstöð forvarna í Hafnarfirði. |




