|
Ásvallalaug hefur verið ein vinsælasta barnalaug landsins frá opnun hennar haustið 2008. Fjölbreyttir möguleikar til afþreyingar og skemmtunar eru í boði en í Ásvallalaug er hægt leika sér í rennibrautum, í blaki, waterpolo, í leiktækjum að ógleymdu sundinu og afslöppun í heitum pottum.
Aðstaðan er að mestu leyti innandyra og má þar telja 50 metra sundlaug, 16,7 metra barnalaug með blakneti, 10 metra vaðlaug með leiktækjum, 3 heitir pottar og eimbað. Tveir heitir pottar eru úti ásamt rúmgóðri sólbaðsaðstöðu í góðu skjóli til suðurs.
Starfsemin í Ásvallalaug er með fjölbreyttasta móti en auk hefðbundins skólasunds og æfinga sundfélaga má nefna ungbarnasund, skriðsundsnámskeið, námskeið fyrir verðandi og nýbakaðar mæður, vatnsleikfimi eldri borgara og waterpolo. Einnig hafa ýmis félög komið til æfinga óreglubundið eins og kafarar, kajakræðarar, björgunarsveitir og fleiri.
Í sumar mun Sundfélag Hafnarfjarðar sjá um sundkennslu barna í Ásvallalaug. Upplýsingar um skráningu má finna á vef félagsins http://www.sh.is/
Opnunartími er virka daga 6:30-20:30, laugardaga 8-18 og sunnudaga 8-17. Sími 512 4050. Forstöðumaður er Björg Snjólfsdóttir.
|