Other courses available > Suðurbæjarlaug
![]() |
Suðurbæjarlaug |
|
Suðurbæjarlaug v/Hringbraut er opin fyrir almenning alla daga vikunnar. Á virkum dögum er opið frá kl. 6:30 - 21:30, á laugardögum frá kl. 8:00-18:30 og á sunnudögum frá kl. 8:00-17:30. Baðgestir eru kallaðir til búningsklefa á lokunartíma. Suðurbæjarlaug er 12,5 x 25 metra útisundlaug sem er samtengd við sérhannaða kennslulaug inni sem einnig er góð barnalaug. Úti eru heitir pottar, vatnsgufa þar sem gengið er í gufubað af laugarbakka, bunusveppur, vatnsrennibraut og við laugarbakkann er vinsæll göngustígur sem liggur um sundlaugargarðinn. Í kjallara Suðurbæjarlaugar eru búningsklefar og Nautilus heilsuræktarstöð. Boðið er upp á ungbarnasund, vatnsleikfimi, sundkennslu og nudd. Í húsnæði laugarinnar starfa þrír nuddarar. |
|




