Other courses available > Víðistaðatún

Víðistaðasvæði er aðalútivistarsvæði Hafnarfjarðar. Svæði er frekar ungt en framkvæmdir við það hófust árið 1988. Á svæðinu er náttúrleg tjörn með hlöðum grjótbökkum, þar er hægt að sigla og busla en botni tjarnirnar er samt moldkenndur, einnig er hægt að veiða síli þar. Leiksvæði er með hlaupaketti sem er mikið notaður en einnig er á leiksvæðinu klifurgrind, rambelta (vegasalt) og jafnvægistæki.

Mikið er af útibekkjum á svæðinu og einnig borð og bekkjum. Stór grassvæði bjóða upp á ýmis konar leiki t.d. fótbolta, hlaupa í skarðið, myndastyttuleik, eina krónu o.s.frv., einnig er hellulagt torg þar sem hægt er að sippa og vera í snú snú o.s.frv. Á svæðinu er einnig tennisvöllur þar sem hægt er að spila tennis og einnig eru trimmtæki þar við.

Svæðið er mjög stórt og opið og tekur við fullt af fólki, þarna hafa verið haldið tónleikar, víkingahátíðar og 17. júní hátíðarhöld svo eitthvað sé nefnt. Einnig mætti nefna að á veturna er góð og vinsæl sleðabrekka neðan við Víðistaðakirkju en ofan við kirkjuna er hjólabrettasvæði sem tilheyrir skólalóð Víðistaðaskóla, en þar er einnig KSÍ sparkvöllur og fleiri leiktæki.







Fara til baka