Other courses available > Hellisgerði
| Hellisgerði er skrúðgarður hafnfirðinga, garðurinn er einstakur sinnar tegundar á Íslandi hvað varðar skrúðgarð með er með slíkt náttúrulegt umhverfi. Mikið er af hrauni, hellum og klettum og þar leynast ýmsar kynjaverur segja sumir. Hellisgerði á sér langa sögu og er eiga margir bæjarbúar góðar minningar þaðan. Á síðasta ári var tjarnarsvæði endurnýjað og upprunalega listaverkið ungi fiskidrengurinn settur í tjörnina sem gosbrunnur þar er hægt að setjast niður og busla og vaða í tjörninni á góðviðrisdögum. Einnig er garðurinn upplagður fyrir hvers konar feluleiki mikið af góðu felustöðum og ratleiki. Litið leiksvæði er í garðinum hugsað fyrir yngsta aldurshópinn með rólum, rennibraut, jafnvægistækjum og sandkassa. Svið er einnig í garðinum þar sem hægt er að vera með hvers konar uppákomur. Garðurinn er mjög skjólgóður og hraunið veitir auk il á sólríkum dögum. ![]() |




