Sumar 2010
Tennisdeild BH
Líkt og undanfarin ár hefur Tennisdeild Badmintonfélags Hafnarfjarđar ađstöđu sína á tveimur tennisvöllum á Víđistađatúni. Ađgangur ađ völlunum er öllum heimill utan notkunartíma félagsins, án endurgjalds. Skipulögđ starfssemi felst í tennisskóla, tennisnámskeiđum og tennisćfingum auk kennslu fyrir hópa og einstaklinga í samvinnu viđ Tennisfélag Kópavogs í Tennishöllinni Kópavogi.
Tennisskóli BH
Í sumar starfrćkir Tennisdeild BH tennisskóla á tennisvöllunum á Víđistađatúni og í íţróttahúsi Víđistađaskóla virka daga í sumar frá kl. 9:00-12:00 fyrir börn 6-12 ára. Fariđ verđur í öll helstu grunnatriđi tennisíţróttarinnar í bland viđ skemmtilega tennisleiki ásamt ţví ađ brugđiđ verđur á leik og fariđ í badminton og ađrar íţróttir. Í lok hvers námskeiđs verđur haldin pizzaveisla og fá allir nemendur viđurkenningarskjal. Verđ fyrir hvert námskeiđ er kr. 13.900. Systkinaafsláttur er 10%.
Hvert námskeiđ stendur yfir í tvćr vikur og verđa eftirfarandi:
1. námskeiđ: 14. - 25. júní
2. námskeiđ: 28. júní - 9. júlí
3. námskeiđ: 3.-13. ágúst
Skráning er í síma 564 4030. Ath. Frestiđ ekki skráningu ţví ađeins 20 krakkar komast á hvert námskeiđ. Tennisćfingar fyrir börn og unglinga 13 ára og eldri og byrjendanámskeiđ fyrir fullorđna verđa haldin í samvinnu viđ Tennisfélag Kópavogs á úti- og innivöllum í Tennishöllinni í Kópavogi. Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 564 4030.