Other courses available > Reiðskóli Íshesta og Sörla



Reiðskóli Íshesta
og Sörla
v/Sörlaskeið
220 Hafnarfirði
símar: 565 2919, 555 7000
http://www.sorli.is/
http://www.ishestar.is/
sorli@sorli.is
info@ishestar.is


Sumarið 2010

Innifalið á öllum námskeiðum eru þ
ægir og góðir hestar, öryggishjálmur, reiðtygi og öll kennslugögn. Einnig eiga nemendur þess kost að taka með sér eigin hest.
Einungis einn nemandi er um hvern hest á hverju námskeiði.
Kennslan skiptist í verklega og bóklega kennslu, en einnig verður farið í skemmtilega reiðtúra upp í Kaldársel, inn í Heiðmörk og að Hvaleyrarvatni.
Í lok hvers námskeiðs er sýning fyrir foreldra og farið er í ævintýrareiðtúr sem endar með grillveislu í boði reiðskólans.
Öll börn fá viðurkenningaskjal með mynd af sér og hestinum ásamt gjöf frá Íshestum og Sörla.

Mikil áhersla er lögð á að nemendur séu ekki of margir á hvern kennara til að tryggja öryggi og góða kennslu.

Tveggja vikna námskeið kosta 24.000. Polla og pæju reið-og-leikja-námskeið kosta 9.500.

Allir nemendur sem voru í HÍF í vetur fá 10% afslátt af námskeiðum sumarreiðskólans. Allir nemendur sumarreiðskólans fá 10% afslátt af HÍF námskeiðum sem hefjast í september.
Systkinaafsláttur er 10%



 Námskeið í boði
 5-8 ára, fædd 2001-2004
 9 - 16 ára, fædd 1993 - 2000


Fara til baka