Other courses available > Félagsmiðstöðin Ásinn




Félagsmiðstöðin Ásinn
Áslandsskóla
221 Hafnarfirði
símar: 585 4611, 664 5747
http://www.asinn.is/
asinn@hafnarfjordur.is



Ásinn - Tómstund, Íþróttaklúbbur, MiniTómstund

Sumar 2010

Félagsmiðstöðin Ásinn í Áslandsskóla þjónustar börn og unglinga frá 5. – 10. bekk í Áslandinu á vetrartíma. Í sumar heldur félagsmiðstöðin að þessu sinni utan um leikjanámskeið og íþróttaklúbb ÍTH.
Yfirumsjón með námskeiðum og klúbbum hafa Helga Vala Gunnarsdóttir, forstöðumaður og Bára Ósk Einarsdóttir, verkefnastjóri. Hægt er að nálgast upplýsingar í síma 5854611 eða á heimasíðu Ássins http://www.asinn.is/

Íþróttaklúbbur
Sumarið verður fullt af fjöri og skemmtilegum uppákomum hjá Íþróttaklúbbi ÍTH. Íþróttaklúbburinn samanstendur af unglingum sem fara á milli leikjanámskeiða, róluvalla og leikskóla. Fara í leiki og eru með uppákomur á hverjum stað fyrir sig. Einnig munu unglingarnir vera vel sýnileg í miðbæ Hafnarfjarðar.

Aðsetur íþróttaklúbbsins verða í Áslandsskóla. Umsjón með íþróttaklúbbnum verða þeir Marteinn Gauti Andrason og Gunnar Ásgeir Halldórsson.

Tómstund – Áslandsskóli + Hraunvallaskóli + Hvaleyrarskóli
Í sumar mun Tómstund verða starfrækt í félagsmiðstöðinni Mosanum í Hraunvallaskóla í júní og júlí og verður margt skemmtilegt á dagskrá.
Tómstund í Mosanum er dægradvöl fyrir nemendur sem voru að ljúka 6. og 7. bekk í Hvaleyrarskóla, Áslandsskóla og í Hraunvallaskóla. Tómstund mun standa fyrir námskeiðum sem standa yfir í fjóra daga hvert og eru námskeiðin röðuð upp þannig að tvö námskeið eru fyrir hádegi og tvö eftir hádegi. Á föstudögum höfum við svokallað föstudagsflipp og þá brjótum við upp daginn og gerum eitthvað skemmtilegt, t.d. grillum og höldum Guitar Hero mót, svo eitthvað sé nefnt.

Starfsmenn Tómstundar fara í alla 6. og 7. bekki í þessum skólum og halda kynningu um starfið og einnig er bæklingur sem fer heim til foreldra. Þátttökugjald er 3200 kr. fyrir allt sumarið og er skráning 11. júní en hún stendur yfir í allt sumar. Námskeiðin hefjast svo 14. júní og standa til 23. júlí.

Allar nánari upplýsingar verða á http://www.mosinn.is/ og er einnig hægt að hringja í síma 590 2804 og nálgast upplýsingar á Facebook undir Tómstund Hraunvallaskóla.

MINI - Tómstund
Hvað? Mini - Tómstund er sumarstarf fyrir krakka fædda 1999 og 2000 ( þau sem voru að klára 4. og 5. bekk.) Mini - Tómstund byggist upp á mismunandi námskeiðum sem eru hvert um sig í eina viku í bland við opið hús og útileiki í félagmsiðstöðinni Mosanum eftir hádegi.

Hvar? Starfssemi Mini - Tómstundar hjá okkur í ár er í félagsmiðstöðinni Mosanum í Hraunvallaskóla. Hraunvallaskóli stendur við Drekavelli 9 og að sjálfsögðu munum við setja upp skilti til þess að auðvelda ykkur leitina.

Hvenær? Mini - Tómstund verður starfrækt frá 14. júní til 23. júlí. Skráning byrjar 11. júní í félagsmiðstöðinni Mosanum. Skráning stendur yfir í allt sumar.

Hvað kostar ? Ekki er greitt fyrri hvert námskeið fyrir sig heldur er greitt fyrir allt sumarið í heild sinni, Þannig að hver einstaklingur getur farið á eins mörg námskeið og hann vill yfir sumarið og kostar það 3500 kr. Greitt er við skráningu og fá krakkarnir þá Mini - Tómstundarskírteini sem veitir þeim einnig aðgang í föstudagsskemmtanirnar - föstudagsflipp.
Greiða þarf fyrir námskeiðin inni á Íbúagátt.

Síminn í Tómstund er 5902804 og 6645747.

Einnig er hægt að finna okkur á facebook undir Tómstund Hraunvallaskóla, en Mini - Tómstund deilir Facebook síðu með Tómstund í Hraunvallaskóla.

Umsjón með Tómstund er Arnar Dan Kristjánsson.

Ath. Eingöngu er hægt að skrá í gegnum Íbúagáttina og greiða með greiðslukorti við skráningu.



Fara til baka