Sumar 2010
Stúdío Vocal býður upp á tvenns konar námskeið, annars vegar í söng og hljóðfæraleik og hins vegar í lagasmíði.
Söngur og hljóðfæraleikur
BYRJENDANÁMSKEIÐ (6 vikur)
- Söngur (Byrjendur og lengra komnir)
- Gítar (Vinnukonugripin og léttir skalar)
- Bassi (Grunnriff og spuni)
- Trommur (Grunntaktar og spuni)
- Hljómborð (Ath! Ekki píanókennsla!!)
Æskilegt er að nemendur eigi viðkomandi hljóðfæri eða hafi greiðan aðgang að slíku.
Verð kr. 32.000 og inniheldur námskeiðið 30 mín. með kennara auk 30 mín. tónfræði á viku.
Lagasmíði
Hefur þig einhvern tíma langað til að semja lag sem þig hefur alltaf dreymt um að klára, taka upp og eiga á geisladisk?
Stúdíó Vocal býður upp á 5 klst. "session", þar sem þú færð að upplifa hvernig lagið þitt verður að veruleika !!
Verð 53.000,- kr. ATH aðeins 10 dagar í boði.
Skráning á bæði námskeiðin og nánari upplýsingar hjá Ívari Helgasyni í síma 699 3880.
Ívar Helgason hóf söng í kór Öldutúnsskóla 8 ára og fór með fyrsta sönghlutverkið sitt í Íslensku Óperunni 11 ára gamall, titilhlutverkið í barnaóperunni Litli Sótarinn... Eftir það var ekki aftur snúið og hefur Ívar komið víða við. Í óperum, söngleikjum, dansverkum og m.a. flutt eigin tónlist. Hann stundaði söngnám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Söngskólann í Reykjavík og hélt utan að því loknu til Vínarborgar og sérmenntaði sig í Söngleikjaflutningi (Söng, leiklist og dans)
Hann vann við söngleiki víðs vegar um Evrópu (Austurríki, Þýskalandi, Ítalíu og Sviss) og hefur sæg af reynslu í pokahorninu.
Eftir að hann kom heim hefur hann verið að vinna við Þjóðleikhúsið (Nornin og Úlfurinn í "Skilaboðaskjóðunni", Manni Mercury í "Ástin er diskó, lífið er pönk!" og síðast sem Nói Claypole auk 6 annarra hlutverka í "Oliver!") Auk þess hefur hann stundað söngkennaranám við Söngskólann í Reykjavík og leitt þar nýja söngleikjadeild og séð um almenna söngkennslu. Ívar hefur gert ýmsar leikgerðir og þýðingar á söngleikjum sem og séð um tónlistar-, leik- og dansstjórn.
