Ath. Skráning hefst 25. maí á öll námskeið íth.
ATH. eftirfarandi á eingöngu við um sumarstarf á vegum Hafnarfjarðarbæjar.
Varðandi önnur námskeið sjá viðkomandi aðilar um.
Skráning
Skráning á sumarnámskeið á vegum ÍTH fer eingöngu fram á netinu og greiðist þátttökugjöld við innritun. Skráning á námskeið sem ekki er á vegum íth s.s. íþróttafélaga, æskulýðsfélaga og annarra, fer eingöngu fram hjá þeim aðilum.

Hvernig skrái ég á námskeið á vegum ÍTH ?
Til þess að hægt sé að skrá á námskeið á netinu þarf forráðamaður að vera skráður í íbúagáttina. Til að skrá sig í íbúagáttina er farið inn á Íbúagátt og valið nýskráning. Þá er hægt að velja um að fá lykilorðið sent í heimabanka eða sækja það í þjónustuverið að Strandgötu 6. Ef viðkomandi er þegar skráður er farið beint í innskráning.
Þegar búið er að skrá sig í íbúagáttina er valinn hnappurinn "skráning á leikjanámskeið" og síðan það námskeið sem á að skrá á. Þá birtist eyðublað sem þarf að fylla út og er nauðsynlegt að fylla vel í alla reiti.
Upplýsingar og aðstoð
Hægt er að fá nánari upplýsingar og aðstoð hjá Þjónustuveri í síma 585 5500, Vinnuskóla Hafnarfjarðar í síma 565 1899 og á skrifstofu æskulýðs- og tómstundamála í síma 585 5750.