Upplýsingar

Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar, ÍTH, vinnur að margvíslegu íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í Hafnarfirði. Á þessum upplýsingavef má finna upplýsingar um það sumarstarf sem í boði er fyrir börn og ungmenni á vegum íth og ýmissa félaga og samtaka.

Æskulýðs- og tómstundamál
Skrifstofa æskulýðs- og tómstundamála er að Mjósundi 10, 2. h., sími 585 5750. Starfsmenn þar eru þrír, Ellert Magnússon deildarstjóri, Anna Kristín Bjarnadóttir rekstrarstjóri og Sigurgeir Árni Ægisson verkefnisstjóri.Undir ÍTH heyra m.a. félagsmiðstöðvar unglinga, Hljóðkerfi Hafnarfjarðar, Vinnuskóli Hafnarfjarðar, skólagarðar og leikjanámskeið bæjarins á sumrin.
Allt sumarstarf á vegum íth fer í gegnum Vinnuskóla Hafnarfjarðar en hann er staðsettur v/Hrauntungu og er síminn 565 1899.

Sumarstarf á vegum íth eru eftirfarandi: Unglingavinna, leikjanámskeið Versins og Öldunnar,íþrótta- og leikjanámskeið bæjarins, Skólagarðar, Tómstund og gæsluvellir.

Afsláttur
Ef fleiri en eitt barn frá sama heimili taka þátt í starfi á vegum íþrótta- og tómstundanefndar er veittur fjölskylduafsláttur sem er 50% fyrir annað og þriðja barn. Athugið að þessi afsláttur nær eingöngu til þeirra námskeiða sem eru á vegum íþrótta- og tómstundanefndar og verða börnin að vera á sama námskeiði til að fá afsláttinn.